Skilmálar

Verslunin BAST í Kringlunni er rekin af Tvist&Bast ehf kennitala 500818-0690.

Símanúmer verslunarinnar er 775 1755 og netfang bast@bast.is

 

Afhending vöru:

Við keppumst við að afgreiða netpantanir eins fljótt og auðið er. Alla jafna eru netpantanir afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag en í einhverjum tilfellum getur afgreiðsla netpantana tekið 2-3 virka daga. Þá taka snillingarnir í TVG við og koma vörunni á þann afhendingarstað sem þú valdir. Veljir þú að sækja netpöntunina þína til okkar í Kringluna færðu tilkynningu í SMS skilaboðum þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vöru.

Af öllum pöntunum dreift af TVG gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar TVG um afhendingu vörunnar. Verslunin BAST ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá versluninni BAST til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

 

Verð á vöru og sendingakostnaður:

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með TVG, sendingakostnaður á vörukaupum innan við 15.000 krónum fer eftir verðskrá TVG en enginn sendingarkostnaður er greiddur ef vörukaup eru 15.000 krónur eða hærri.

 

Að skipta og skila vöru:

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Vara sem er með skiptimiða/gjafamerki gerir kassakvittun óþarfa við skil. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan gildir í 4 ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Ef verslað er í netverslun er hægt að skila vöru og fá endurgreitt ef að varan er enn í lokuðum umbúðum og ónótuð. Sendingarkostnaður er greiddur af kaupanda.

 

Gölluð vara:

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

 

Greiðslur:

Við bjóðum upp á fimm mismunandi greiðslumöguleika, millifærslu, kreditkort, debetkort, Pei eða netgíró.

  

Annað:

Við heitum fullum trúnaði við viðskiptavini okkar og afhendum ekki upplýsingar til þriðja aðila. Allir sem versla hjá okkur verða skráðir sjálfkrafa á póstlistann hjá okkur.

 

Trúnaður:

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.  

 

Lög og varnarþing:

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur. Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.